Steinunn Hallgrímsdóttir fæddist í Vallarhjáleigu í Gaulverjabæjarhreppi 5. júní 1946. Hún lést á krabbameinsdeild Landspítalans 15. nóvember 2025.
Foreldrar hennar voru Bjarnþóra Eiríksdóttir, f. 6. júní 1906, d. 28. september 1990, og Hallgrímur Pétursson Þorláksson, f. 18. júní 1913, d. 2. febrúar 1996. Systkini Steinunnar eru Eiríkur, f. 20. apríl 1935, giftur Maríu Leósdóttur. Gunnþórunn, f. 24. júní 1937, gift Jóni Ólafssyni, d. 20. okt. 2022. Fósturbróðir Hörður Vestmann Árnason, f. 27. september 1937, d. 8. mars 2021, giftur Jóhönnu Kristinsdóttur.
Þann 26. desember 1964 giftist Steinunn eftirlifandi eiginmanni sínum Agli Erni, f. 24. júlí 1944. Foreldrar hans voru Kristín Karlsdóttir, f. 18. júlí 1919, d. 21. apríl 1994, og Jóhannes Gunnarsson, f. 25. ágúst 1917, d. 25. júlí 1982.
Börn þeirra eru:
1) Bjarnþóra, f. 29. september 1964. Dætur hennar eru Agla Steinunn, f. 1987, í sambúð með Jóni Sigþóri Jónssyni. Synir Öglu Steinunnar eru Bjarni Þór og Hilmir Steinn. Sólborg Arna, f. 1996, gift Magnúsi Guðlaugi Magnússyni, sonur þeirra er Magnús Helgi. Stjúpbörn Bjarnþóru eru Kolbeinn, Jökull og Eva.
2) Jóhannes, f. 24. október 1966. Dóttir hans og Elfu Vilhjálmsdóttur er Ása Kristín, f. 1996. Stjúpdóttir Jóhannesar er Sólveig Þórðardóttir, f. 1991.
3) Kristín, f. 3. febrúar 1968, gift Hauki Guðmundssyni. Börn þeirra eru Guðmundur, f. 1997, giftur Sarai Joaquina Navas Lopes. Bjarnþóra, f. 1999, og Sigrún Snæfríður f. 2002, í sambúð með Jens Inga Andréssyni.
4) Hallgrímur, f. 4. desember 1971. Sonur hans og Guðnýjar Birnu Ólafsdóttur er Arnþór, f. 1995, kvæntur Bergdísi Elínu Peiser Ívarsdóttur. Sonur þeirra er Markús Ingi. Börn Hallgríms og Tatjönu Jastsuk eru Elizabet Rún, f. 2006, í sambúð með Sindra Ingimundarsyni, og Anton Freyr, f. 2008, í sambandi með Arndísi Evu Kolbeinsdóttur. Stjúpsonur hans og barn Guðnýjar Birnu er Róbert Einarsson.
5) Ása Linda, f. 27. mars 1973. Barnsfaðir Ásu Lindu er Egill Rúnar Hjartarson og börn þeirra eru Jóhannes, f. 1992, í sambúð með Katerynu Pershko. Steinunn María, f. 1996, í sambúð með Ágústi Þorra Bergþórssyni og Berglind Marý, f. 2002, í sambúð með Jakobi Viðari Sævarssyni. Stjúpdóttir Ásu og dóttir Egils er Hanna Björg, f. 1989, í sambúð með Elíasi Ísfjörð, börn þeirra eru Egill Ingi og Elín Sigurbjörg.
Steinunn ólst upp í Dalbæ í Gaulverjabæjarhreppi og útskrifaðist með fullnaðarpróf frá Gaulverjabæjarskóla 12 ára gömul. Sökum veikinda foreldra tók hún snemma að sér heimilis- og bústörf. Í júlí 1962 kynnist hún eftirlifandi eiginmanni sínum og bjuggu þau ásamt foreldrum hennar í Dalbæ. Árið 1977 fluttu þau til Reykjavíkur, starfaði hún við umönnun aldraðra, bakstur fyrir St. Jósepsspítala og í eldhúsi hjá Brauðbæ. Þau hjónin ráku Bifreiðaverkstæði Egils Arnar. Sá hún um bókhald og rekstur verkstæðisins. Eftir það starfaði hún í eldhúsinu í leikskólanum Völvuborg, hjá Myllunni, hjá BSRB og lauk svo starfsferlinum sem skólaliði í Ölduselsskóla.
Sumarið 1982 keyptu þau land undir sumarhús í Grímsnesi er þau byggðu sér sælureit og nutu vel.